Fara í efni

Skorið niður á Syðri-Hofdölum – hjörð líklega smituð

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun áréttar vegna andmæla við niðurskurði á sauðfé á bænum Syðri-Hofdölum að stofnunin telur líklegt að riðusmit sé til staðar í hjörðinni og því ekki verjandi að hverfa frá lögbundnum aðgerðum sem leitt getur til frekari útbreiðslu veikinnar.

Margar smitleiðir voru á milli fjárins sem umgekkst hrútinn sem greindist með riðu og allrar hjarðarinnar, sérstaklega í sauðburði en þá er smithætta mest. Þó riða hafi ekki greinst í fénu sem umgekkst hrútinn beint, er ekki þar með sagt að það hafi ekki verið smitað.

Ástæður fyrir því að hjörðin er líklega smituð af riðu eru eftirfarandi:

  1. Meðgöngutími riðu er að jafnaði tvö til þrjú ár, en getur farið upp í fimm ár. Meðgöngutími er sá tími sem líður frá því að kind fær í sig smit og þar til einkenni koma fram. Aðeins 10 mánuðir voru liðnir frá því smitaði hrúturinn kom í afmarkaðan hóp hjarðarinnar, litlar líkur eru því á að einkenni riðusmits sé komið fram í fénu.
  2. Næmi prófsins (ELISA) sem notað er til að greina riðusmit er getur verið svo lágt sem 66%, þess vegna finnst ekki riðusmit í öllum kindum þó þær séu smitaðar. Næmið fer m.a. eftir því hversu langur tími er liðinn frá smiti. ELISA prófið er það besta sem völ er á. Ef það greinir riðusmit þá er það staðfest með öðru sértækara prófi en ef ELISA prófið greinir ekki riðu þá getur kindin samt sem áður verið smituð en engin leið til að kanna það nánar.

Greining gripanna í október var eingöngu gerð í rannsóknaskyni, því upphaf riðusmitsins á bænum var þekkt og því einstakt tækifæri til að skoða hvort smitefnið fyndist í eitlum eða heila eftir svo skamman smittíma.

Þetta eru rök Matvælastofnunar sem fram koma í umsögn hennar til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins vegna andmæla við niðurskurði. Andmælin voru í kjölfarið dregin til baka. Það er mat stofnunarinnar að óverjandi sé að halda hjörð lifandi sem líkur eru á að sé smituð og getur því leitt til frekari útbreiðslu veikinnar.

Ítarefni

Uppfært 01.12.20 kl. 17:04


Getum við bætt efni síðunnar?