Fara í efni

Tilkynningarskylt dýrahald

Sum starfsemi með dýr er tilkynningaskyld til Matvælastofnunnar. Ekki eru gefin út nein starfsleyfi en óheimilt er að hefja starfsemina fyrr en liggur fyrir að skilyrði í reglugerð sem varðar starfsemina séu uppfyllt. Tilkynningaskyldri starfsemi er skipt upp í tímabundna starfsemi (dýrasýningar) eða varanlegt dýrahald eða þjónusta.

Dýrasýningar

Ef fyrirhugað er að halda dýrasýningu skal tilkynna Matvælastofnun í gegnum rafræna þjónustugátt á vef hennar eigi síðar en 2 vikum áður en fyrirhuguð sýning er áætluð með upplýsingum um m.a. staðsetningu, húsakost, búnað og viðeigandi öryggisráðstafanir varðandi brunavarnir. Óheimilt er að  halda dýrasýningu áður en staðfesting Matvælastofnunar liggur fyrir um að skilyrði varðandi húsakost, búnað, öryggi og þekkingu sem sett eru í reglugerð um velferð gæludýra séu uppfyllt. Úttekt stofnunarinnar getur falist í eftirlitsheimsókn eða við rýni á skriflegum gögnum sem fylgja tilkynningunni.

Varanlegt dýrahald eða þjónusta

Umráðamanni dýrahalds sem talið er upp hér undir, ber að tilkynna Matvælastofnun um fyrir­hugað dýrahald gegnum rafræna þjónustugátt á heimasíðu eigi síðar en þremur mánuðum áður en áætluð starfsemi hefst.

  • Dýraathvarf
  • Dýraaðstaða sveitarfélaga
  • Dýradaggæsla
  • Dýraendurhæfing
  • Dýrahótel
  • Dýraleiga
  • Dýralæknaaðstaða
  • Dýramiðlun
  • Dýrasnyrting
  • Dýrasýning
  • Gæludýraverslun
  • Umfangsmikið gæludýrahald

Matvælastofnun skal taka út fyrirhugaða starfsemi innan þriggja mánaða frá móttöku tilkynningar. Úttekt stofnunarinnar getur falist í eftirlitsheimsókn eða við rýni á skriflegum gögnum sem fylgja tilkynningunni. Óheimilt er að hefja starfsemi áður en staðfesting Matvælastofnunar liggur fyrir um að skilyrði varðandi húsakost, búnað og þekkingu sem sett eru í reglugerð um velferð gæludýra séu uppfyllt.

Nánar um tilkynningarskyldu varðandi sérstakar dýrategundir:

Uppfært 30.01.2020
Getum við bætt efni síðunnar?