Fara í efni

Tilkynningarskylt kattahald

Kattasýning

Ef fyrirhugað er að halda kattaasýningu skal tilkynna Matvælastofnun gegnum rafræna þjónustugátt á heimasíðu eigi síðar en 2 vikum áður en fyrirhuguð sýning er áætluð, með upplýsingum um m.a. staðsetningu, húsakost, búnað og viðeigandi öryggisráðstafanir varðandi brunavarnir. Óheimilt er að  halda dýrasýningu áður en staðfesting Matvælastofnunar liggur fyrir um að skilyrði varðandi húsakost, búnað, öryggi og þekkingu sem sett eru í reglugerð um velferð gæludýra séu uppfyllt. Úttekt stofnunarinnar getur falist í eftirlitsheimsókn eða við rýni á skriflegum gögnum sem fylgja tilkynningunni.

Varanlegt dýrahald eða þjónusta

Umráðamanni dýrahalds sem talið er upp hér undir, ber að tilkynna Matvælastofnun um fyrir­hugað dýrahald gegnum rafræna þjónustugátt á heimasíðu eigi síðar en þremur mánuðum áður en áætluð starfsemi hefst.

  • Dýraathvarf
  • Dýraaðstaða sveitarfélaga
  • Dýradaggæsla
  • Dýraendurhæfing
  • Dýrahótel
  • Dýraleiga
  • Dýralæknaaðstaða
  • Dýramiðlun
  • Dýrasnyrting
  • Dýrasýning
  • Gæludýraverslun
  • Umfangsmikið gæludýrahald:
    - Kattahald með 10 eða fleiri ketti eldri en 12 mánaða.
    - Ræktun með 3 eða fleiri got á ári.
    - Útleiga á 3 eða fleiri dýrum á ári.

Matvælastofnun skal taka út fyrirhugaða starfsemi innan þriggja mánaða frá móttöku tilkynningar. Úttekt stofnunarinnar getur falist í eftirlitsheimsókn eða við rýni á skriflegum gögnum sem fylgja tilkynningunni. Óheimilt er að hefja starfsemi áður en staðfesting Matvælastofnunar liggur fyrir um að skilyrði varðandi húsakost, búnað og þekkingu sem sett eru í reglugerð um velferð gæludýra séu uppfyllt.

Uppfært 01.02.2021
Getum við bætt efni síðunnar?