Fara í efni

Grís í garðinum

Síðustu ár hefur færst í vöxt að bændur og aðrir einstaklingar kaupi einstaka svín til að ala sjálfir, sérstaklega yfir sumartímann. Matvælastofnun hefur gefið út leiðbeiningar fyrir þá sem hafa hugsað sér að kaupa grísi þar sem dregin eru fram helstu atriði sem hafa þarf í huga.

Í leiðbeiningunum er farið yfir þær kröfur sem gerðar eru varðandi aðbúnað og velferð dýra og mikilvægi þess að afla sér grunnþekkingar á þörfum og umönnun svína. Ef eigendur hafa í hyggju að selja afurðir svína sinna þurfa þeir jafnframt að kynna sér þær reglur sem gilda um matvælaframleiðslu.

Við svínahald þarf einnig að huga að smitvörnum. Svín geta borið með sér smit, einkum salmonellusmit, og þurfa kaupendur grísa að kynna sér stöðu þess bús sem keypt er frá. Mikilvægt er að fólk geri sér grein fyrir að bannað er að gefa svínum dýraafurðir  (mjólk og egg undanskilin) og eldhúsúrgang sem inniheldur dýraafurðir eða hefur komist í snertingu við dýraafurðir. Fóðrun svína með dýraafurðum eða eldhúsúrgangi getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér enda talin vera ein helsta smitleið alvarlegra smitsjúkdóma í svín.

Uppfært 13.03.2024
Getum við bætt efni síðunnar?