Fisksjúkdómanefnd
Hlutverk
Fisksjúkdómanefnd starfar samkvæmt 4. gr. laga nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum, sem er svo hljóðandi:
Ráðherra 1) fer með yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum. Framkvæmd stjórnsýslunnar er að öðru leyti í höndum Matvælastofnunar 2) sem hefur eftirlit með því að ákvæðum laganna sé framfylgt. Matvælastofnun 2) til ráðgjafar við framkvæmd laganna er fisksjúkdómanefnd. Ráðherra skipar fimm manna fisksjúkdómanefnd: einn samkvæmt tilnefningu Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, tvo samkvæmt tilnefningu Hafrannsóknastofnunar og skal annar vera sérfróður um ferskvatnsfiska en hinn um sjávardýr og einn samkvæmt tilnefningu Fiskistofu og yfirdýralækni, sem jafnframt skal vera formaður nefndarinnar. 3) Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Matvælastofnun 2) skal hafa forgöngu um að stundaðar séu fisksjúkdómarannsóknir og gera tillögur til ráðherra um aðferðir til varnar gegn útbreiðslu fisksjúkdóma, sem getur um í lögum þessum, og annað er að fisksjúkdómum lýtur.
1) L. 126/2011, 427. gr. 2) L. 167/2007, 79. gr. 3) L. 113/2015, 5. gr.
Vinnureglur
Skipanir
Ráðherra skipar fimm manna fisksjúkdómanefndferð dýra til 5 ára í senn og er nefndin nú svo skipað til 18. júlí 2021:
- Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir, formaður, skipuð án tilnefningar
- Gísli Jónsson, dýralæknir fisksjúkdóma varamaður, tilnefndur af Matvælastofnun
- Árni Kristmundsson, deildarstjóri á rannsóknadeild fisksjúkdóma, tilnefndur af Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
- Þorbjörg Einarsdóttir PhD, sérfræðingur, varamaður tilnefnd af sama
- Jón Sólmundsson. fiskfræðingur, tilnefndur af Hafrannsóknarstofnun
- Klara Björg Jakobsdóttir, fiskfræðingur, varamaður tilnefnd af sama
- Ragnhildur Þ. Magnúsdóttir, líffræðingur, tilnefnd af Veiðimálastofnun
- Guðni Guðbergsson, fiskifræðingur, varamaður tilnefndur af sama
- Guðni Magnús Eiríksson, sviðsstjóri lax- og silungsveiðisviðs, tilnefndur af Fiskistofu
- Halla María Sveinbjörnsdóttir, lögfræðingur, varamaður tilnefndur af sama
Fundargerðir / erindi lögð fyrir nefndina til umfjöllunar
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 30. nóvember 2020
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 6. nóvember 2020
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 21. október 2020
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 12. október 2020
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 7. september 2020
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 26. maí 2019
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 21. nóvember 2019
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 23. september 2019
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 19. ágúst 2019
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 26. október 2018
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 5. október 2018
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 11. september 2018
- Heimild til að meðhöndla eldislax með lúsalyfinu Alpha Max vet í Tálkna- og Arnarfirði 22. júní 2018
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 31. maí 2018
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 22. nóvember 2017
- Fundur Fisksjúkdómanefndar 17. október 2017
- Endurskoðuð umsögn frá fundi 31.05.2018