Fara í efni

Meðferð hrogna

Allir aðilar sem koma að meðferð og dreifingu matvæla eru ábyrgir fyrir réttri meðferð, sem tryggja á öryggi og gæði matvælanna. Við meðhöndlun hrogna er mikilvægast að rétt sé staðið að meðferð og frágangi við slægingu um borð í skipum eða slægingarstöð.

Halda skal mismunandi tegundum aðskildum ef selja á hrogn undir fisktegundaheiti. Ef hrogn eru seld sem þorskhrogn (Gadus morhua) eiga það að vera hrogn úr þorski. Ef tegundum er blandað saman skal merkja þau sem blönduð hrogn og tilgreina tegundir. Annað er blekkjandi fyrir kaupendur. Skv. 11 grein laga nr. 93/1995 um matvæli er óheimilt er að hafa matvæli á boðstólum eða dreifa þeim þannig að þau blekki kaupanda að því er varðar uppruna, tegund, gæðaflokkun, samsetningu, magn, eðli eða áhrif. Einnig er bent á að reglugerð nr. 1379/2013  um markaðssetningu fisks og fiskafurða (CMO regulation) er í gildi í Evrópu og verða fyrirtæki sem setja vörur á markað í Evrópu að merkja í samræmi við kröfur hennar.

Nokkur atriði sem hafa ber í huga við veiðar og vinnslu skv. reglugerð EB/853/2004 viðauki III, VIII. þáttur (Ísl. nr. 104/2010):

  • Gera skal að afla eins fljótt og kostur er 
  • Blóðga skal fisk þegar hann er dreginn um borð og láta blæða í ísbaði (rennandi vatni/sjó)
  • Slæging skal fara fram að lokinni blóðgun
  • Þá hluta aflans, sem ætlaðir eru til manneldis, skal þvo vandlega og aðskilja frá óætum hlutum
  • Kæla skal afurðirnar; fisk, hrogn og lifur, sem næst hitastigi bráðnandi íss með ísun, eða frysta
  • Verja skal allar afurðir fyrir veðri og vindum
  • Eigi að nýta hrogn og lifur til manneldis skal flokka afurðir  eftir fisktegund

Til að tryggja sem best gæði hrogna og lifrar skal: 

  • Vanda slægingu, svo hrogn og lifur séu eins heil og kostur er
  • Varast að rjúfa himnuna sem myndar hrognasekkinn og ver hrognin
  • Varast  að láta meltingarensím s.s. gall leika um afurðirnar
  • Nota minni ílát svo komist verði hjá því að hrognasekkurinn gefi sig undan þrýstingi 
  • Nota krapa til kælingar

Ítarefni 

* Skv. reglugerð EB/853/2004 viðauki III, VIII. þáttur (Ísl. nr. 104/2010)

Uppfært 29.01.2020
Getum við bætt efni síðunnar?