Fara í efni

Lífræn framleiðsla

Þann 1. janúar 2022 mun taka gildi ný löggjöf í Evrópusambandinu um lífræna framleiðslu en til stóð að hún tæki gildi fyrir ári síðan. Ísland og Noregur hafa unnið að innleiðingu þessarar löggjafar og mun hún væntanlega taka gildi hérlendis á vormánuðum. 

Um er að ræða endurskoðun á löggjöf Evrópusambandsins, en þetta er gert til að bregðast við breytingum sem eru að verða við hraðan vöxt í lífrænni ræktun og framleiðslu um allan heim.  Löggjöfin er endurskrifuð til að tryggja berut jafna samkeppni milli bænda hvar sem þeir eru staðsettir og um leið koma í veg fyrir svind og viðhalda trausti neytenda með eftirfarandi aðgerðum.

  • Framleiðslureglur eru einfaldaðar og horfið er frá fjölda undanþáguheimilda og tilslakana í áföngum
  • Eftirlitskerfið er styrkt meðal annars með meiri varúðarráðstöfunum og eftirliti með allri virðiskeðjunni, hjá matvælavinnslum, heildsölum og innflytjendum. 
  • Framleiðendur í löndum utan Evrópu þurfa að uppfylla sömu reglur og þeir sem framleiða vottaðar lífrænar vörur innan Evrópu.
  • Reglurnar ná yfir fleiri vörur (þ.e. salt bývax, kork, ull) og settar eru fleiri framleiðslureglur (þ.e. dádýr, kanínur, og alifuglar) 
  • Vottun er gerð auðveldari fyrir litla bændur með hópvottun sem hefur verið stunduð í löndum utan Evrópu. 
  • Samræmd nálgun er á að draga úr hættu á mengun fyrir slysni með varnarefnum t.d. frá nágrönnum 
  • Undanþágur fyrir ræktun í pottum og afmörkuðum beðum í gróðurhúsum verða aflagðar í skrefum. 

Væntanleg löggjöf hefur ekki verið birt á íslensku en hægt er að nálgast hana á ensku og öðrum tungumálum Evrópusambandsins á Eur-Lex. 
EUR-Lex - 02018R0848-20201114 - EN - EUR-Lex (europa.eu)

 

Uppfært 15.12.2021
Getum við bætt efni síðunnar?