Fara í efni

Þegar sjóða þarf neysluvatn

 Þegar neysluvatnið er mengað af sjúkdómsvaldandi gerlum, veirum eða sníkjudýrum er nauðsynlegt að hreinsa allt vatn sem á að drekka eða nota við matargerð. Algengast er að sjóða neysluvatnið og gera þannig óvirka þá meinvalda, sem er að finna í vatninu. Ábending um að sjóða neysluvatn kemur oftast  frá heilbrigðiseftirliti vegna gruns um eða að fenginni staðfestingu á að vatnið sé mengað.

Þegar gefin er út viðvörun og notendum bent á að sjóða neysluvatn er rétt að hafa eftirfarandi í huga.

Að sjóða neysluvatn

Vatnið þarf að bullsjóða. Hraðsuðuketill bullsýður vanalega vatnið þegar hann slekkur á sér og það er nægilegt. Ef notaður er örbylgjuofn verður að ganga úr skugga um að vatnið bullsjóði.

Soðið vatn

Allt vatn sem drukkið er þarf að vera soðið. Einnig er nauðsynlegt að sjóða vatn sem nota á;

  • við matargerð, s.s. til skolunar á matvælum, sem ekki á að hitameðhöndla þ.e. sjóða eða steikja
  • til íblöndunar safa, annarra drykkja eða matvæla, sem neytt er án eldunar
  • til kaffilögunar, ef kaffivélin sýður ekki vatnið við uppáhellinguna  þarf að setja soðið vatn í hana
  • til ísmolagerðar
  • til tannburstunar
  • til böðunar ungbarna
  • til loftræstingar s.s. í rakatæki

Þessi listi er ekki tæmandi og verður hver og einn að meta það hvort hætta sé á ferðum sé vatnið notað ósoðið.

Ósoðið vatn

Nota má ósoðið vatn;

  • til matargerðar s.s. til skolunar á matvælum, sem munu síðar vera elduð
  • til uppþvotta í vél eða höndum og er þá leirtau þurrkað eða látið þorna fyrir notkun
  • til handþvotta
  • til baða, í baðkari eða sturtu en rétt að brýna fyrir börnum að drekka ekki vatnið
  • til tauþvotta
  • til þrifa
Uppfært 27.01.2020
Getum við bætt efni síðunnar?