Fara í efni

Útbreiðsla riðu á þrjá bæi staðfest

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Riða á bæjunum Grænumýri og Syðri-Hofdölum í Blönduhlíð, og Hofi í Hjaltadal hefur verið staðfest. Sauðféð sem riðan greindist í kom frá Stóru-Ökrum þar sem riða var staðfest í síðustu viku. Ákvörðun um niðurskurð liggur ekki fyrir að svo stöddu en frekari rannsóknir standa yfir. 

Matvælastofnun hefur tekið tæp tvö þúsund sýni úr sauðfé innan Tröllaskagahólfs frá því að grunur um riðu kom upp, ásamt því að kortleggja flutninga sauðfjár til og frá bæjum innan hólfsins. Upplýst verður um frekari niðurstöður um leið og þær liggja fyrir. 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?