Stefnur
Neytendaverndarstefna
Neytendaverndarstefna
Neytendavernd með tilliti til matvæla snýr bæði að því að vernda heilbrigði manna með því að stuðla að öryggi og heilnæmi matvæla og að því að vernda hagsmuni neytenda hvað varðar rétt þeirra til upplýsinga. Heilsa manna, dýra og umhverfis mynda eina órofa heild – Ein heilsa. Stefna í málefnum neytendaverndar nær því til flestra meginþátta í starfsemi Matvælastofnunar.
Framtíðarsýn og meginmarkmið
Framtíðarsýn Matvælastofnunar er að forvarnir, eftirlit og viðbrögð vegna neytendamála séu í fremstu röð og fyrirmynd annarra ríkja þar sem starfrækt er sambærileg starfsemi.
Meginmarkmiðið er að stuðla að öryggi og heilnæmi matvæla og standa vörð um rétt neytenda til upplýsinga með því að vakta og sannprófa, með samræmdum og markvissum hætti, að rekstraraðilar uppfylli kröfur viðeigandi laga og reglugerða. Einnig með því að stunda áhrifaríkar forvarnir í formi fræðslu og leiðbeininga sem og með því að tryggja fumlaus viðbrögð við sérhverri ógn við neytendavernd.
Markmið
- Áhrifaríkar forvarnir
- Árángursríkt eftirlit
- Fumlaus viðbrögð
Hægt er að lesa stefnuskjal neytendaverndarstefnu hér: Neytendaverndarstefna.pdf