Fara í efni

Stefnur

Lagareldisstefna

 

Lagareldisstefna

Stefna þessi fjallar um starfsemi Matvælastofnunar í lagareldismálum sem ætlað er að stuðla að ábyrgu lagareldi og standa vörð um heilbrigði og velferð lagardýra.

Framtíðarsýn og meginmarkmið

Framtíðarsýn Matvælastofnunar er að eftirlit og stjórnsýsla lagareldis á Íslandi verði í fremstu röð og fyrirmynd annarra ríkja þar sem starfrækt er sambærileg starfsemi.

Meginmarkmið Matvælastofnunar er að stuðla að ábyrgu lagareldi og standa vörð um heilbrigði og velferð lagardýra með því að vakta og sannprófa, með samræmdum og markvissum hætti, að rekstraraðilar uppfylli kröfur viðeigandi laga og reglugerða. Einnig með því að stunda áhrifaríkar forvarnir í formi fræðslu og leiðbeininga sem og með því að tryggja fumlaus viðbrögð við sérhverri ógn sem steðjar að lagareldi og líffræðilegum fjölbreytileika.

Markmið

  • Áhrifaríkar forvarnir
  • Árángursríkt eftirlit
  • Fumlaus viðbrögð

Hægt er að lesa stefnuskjal lagareldisstefnu hér: Lagareldisstefna.pdf

Uppfært 20.05.2025
Getum við bætt efni síðunnar?