Fara í efni

Fuglaflensa í heimilishænum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Fuglaflensuveirur (H5) greindust í sýnum sem tekin voru úr heimilishænum á bænum Reykjum á Skeiðum 15. apríl sl. og rannsökuð á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Hænurnar voru með sjúkdómseinkenni sem bentu sterklega til að um fuglaflensu væri að ræða. Auk þess hafði fuglaflensa greinst í hrafni sem fannst dauður á bænum nokkrum dögum áður. Sýnin verða rannsökuð nánar á rannsóknarstofu erlendis m.a. hvað meinvirkni varðar og er niðurstöðu að vænta í næstu viku.

Talið er nokkuð víst að hænurnar hafi smitast af villtum fuglum. Litlar líkur eru taldar á að smit hafi borist frá hænunum í aðra alifugla en Matvælastofnun mun kanna það nánar og mikilvægt er að eigendur alifugla á svæðinu fylgist vel með fuglunum sínum og tilkynni án tafar til Matvælastofnunar ef þeir verða varir við sjúkdómseinkenni eða dauða.

Matvælastofnun minnir enn og aftur á reglur sem birtar voru í Stjórnartíðindum fyrr í vetur um tímabundnar varnaraðgerðir til að fyrirbyggja að fuglaflensa berist í alifugla og aðra fugla í haldi. Það er gífurlega mikilvægt að fuglaeigendur fylgi þessum reglum og verndi með því sína eigin fugla og annarra.

Því miður er hætt við að töluvert sé um fuglaflensusmit í villtum fuglum um þessar mundir. Eins og fram kom í frétt stofnunarinnar 15. apríl hefur fuglaflensa þegar greinst í hrafni á Skeiðum, súlu í Selvogi og heiðagæs í Hornafirði. Á undanförnum dögum hefur Matvælastofnun borist mikið af tilkynningum um dauða villta fugla víða á landinu. Stofnunin fer yfir allar ábendingar og metur hvort ástæða sé til að taka sýni. Matið byggir m.a. á staðsetningu, fuglategund og tíma frá því fuglinn fannst.

Fólki er bent á að gæta ítrustu sóttvarna ef það þarf að handleika villta fugla, hvort sem þeir eru dauðir eða lifandi. Hræ skulu annað hvort látin liggja óhreyfð eða tekin í plastpoka án þess að þau séu snert með berum höndum.

Það skal tekið fram að engin dæmi eru um að fólk smitist af fuglaflensu við neyslu eggja eða fuglakjöts, hvort sem er af alifuglum eða villtum fuglum.

Matvælastofnun berast fjölmargar fyrirspurnir um fuglaflensu og reynir eftir fremsta megni að svara þeim en vill jafnframt benda fólki á að kynna sér þær upplýsingar sem er að finna á vefsíðu stofnunarinnar, m.a. undir liðnum spurningar og svör á upplýsingasíðu um fuglaflensu.

Ítarefni

Upplýsingasíða Matvælastofnunar um fuglaflensu

Kort yfir rannsóknir á sýnum úr villtum fuglum og greiningar á fuglaflensu í þeim. Velja "fuglaflensa". 

Fréttir

Fuglaflensa staðfest á Íslandi

Skæðar fuglaflensuveirur í haferni

Varnaraðgerðir gegn fuglaflensu

Ekki fuglaflensa í svartfuglum en staðan í Evrópu er alvarleg

Fjöldadauði svartfugla


Getum við bætt efni síðunnar?