Fara í efni

Vanmerktir súkkulaðihjúpaðir bananabitar

Matvælastofnun varar neytendur við einni framleiðslulotu af Til hamingju súkkulaðihjúpuðum bönönum sem Nathan & Olsen framleiðir vegna vanmerkinga. Varan getur innihaldið súkkulaðihjúpaðar valhnetur sem er varasamt fyrir þá sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir þeim. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna af markaði.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Til hamingju
  • Vöruheiti: Súkkulaðihúðaðir bananar
  • Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 04.12.2024
  • Nettómagn: 140 g
  • Strikamerki: 5690595096806
  • Framleiðandi (pökkunaraðili): Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar, Fjarðarkaup, verslanir Samkaupa, Kaupfélag Skagfirðinga og Skaftárskáli (Systrakaffi ehf.).

Neytendum sem keypt hafa vöruna og eru með ofnæmi eða óþol fyrir valhnetum er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni til Nathan & Olsen.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?