Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Laxa Fiskeldis í Reyðarfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Laxa Fiskeldi ehf. til sjókvíaeldis á 10.000 tonnum af frjóum laxi í Reyðarfirði. Tillagan er byggð á matsskýrslu frá 2018 um viðbótarframleiðslu Laxa Fiskeldis ehf. (áður Laxar eignarhaldsfélag ehf.) á 10.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði.

Fyrirtækið hefur þegar rekstrarleyfi fyrir 6.000 tonna hámarkslífmassa, auk rekstrarleyfis fyrir 10.000 tonnum sem Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi 21. maí.

Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi sem heimilar allt að 10.000 tonna hámarkslífmassa af laxi á hverjum tíma með 200g lágmarksstærð seiða við útsetningu. Með viðbótinni verður eldi fyrirtækisins allt að 16.000 tonn af laxi í firðinum. Burðarþolsmat Hafrannsóknastofnunar í Reyðarfirði er 20.000 tonn og áhættumat stofnunarinnar gerir ráð fyrir 16.000 tonnum af frjóum laxi.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum i samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 23. júní 2021.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?