Tillaga að rekstrarleyfi Benchmark Genetics Iceland hf. til fiskeldis í Vogum
Frétt -
08.11.2021
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Benchmark Genetics Iceland hf. vegna fiskeldis í Vogavík í Vogum. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 500 tonna hámarkslífmassa vegna seiða -og matfiskeldis á laxi.
Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum i samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 6. desember 2021.
Ítarefni