Fara í efni

Tilkynning frá framkvæmdanefnd landsmóts hestamanna

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
  Á fundi framkvæmdanefndar Landsmóts hestamanna sem haldinn var í Skagafirði, 7. maí með dýralækni hrossasjúkdóma var ákveðið að ekki verði hvikað frá undirbúningi Landsmóts hestamanna þrátt fyrir að smitandi hósti gangi nú yfir hrossastofninn. Kynbótasýningum verður fram haldið samkvæmt auglýstri dagskrá.    

 
Ef á þarf að halda verða settar á aukakynbóta-sýningar sem eingöngu verða ætlaðar þeim hrossum sem ekki hafa áður getað mætt vegna veikinda.


Í lögum og reglum Landssambands hestamannafélaga, grein 6.5, er heimild til þess að félögin haldi tvær umferðir Landsmótsúrtöku.

Félögin eru hvött til þess að nýta þetta ákvæði, ef þörf krefur, til að veita sem flestum tækifæri til að afla sér þátttökuréttar á Landsmóti.

Hestamenn eru hvattir til að gæta að velferð hrossa sinna og mæta ekki með veik hross til keppni eða sýninga.


Ítarefni




Framkvæmdanefnd Landsmóts hestamanna fundaði í Varmahlíð 7. maí ásamt dýralækni hrossasjúkdóma hjá MAST


Getum við bætt efni síðunnar?