FARALDUR SMITANDI HÓSTA Í ÍSLENSKA HROSSASTOFNINUM
|
|
Þann 7. apríl 2010
barst MAST tilkynning um veik hross á Hólum í Hjaltadal og
grun um smitsjúkdóm. Einn hestur var þá með alvarlegan hósta, mikinn
graftarkenndan hor og hita, en var á batavegi eftir meðhöndlun.
Hesturinn hafði komið til Hóla, frá þjálfunarmiðstöð á Suðurlandi 11.
mars. Hann hafði fengið fyrstu einkenni veikinnar 20. mars. Aðrir hestar
sem voru veikir í húsinu stóðu í stíunum næst honum, alls um 10 hestar.
Þeir voru alla jafna með vægari einkenni og hitalausir. Við nánari
eftirgrennslan kom í ljós að hryssa sem kom frá fyrrgreindri
þjálfunarmiðstöð 22. febrúar, hafði verið með vægari einkenni
öndunarfæra-sýkingar frá því í byrjun mars. Hinsvegar hafði ekki borið á
neinum einkennum hjá tveimur hrossum sem komu frá stöðinni 4. febrúar.
Um 50 hestar voru í húsinu þar sem veikin uppgötvaðist fyrst. Miklar
tilfærslur og flutningar höfðu verið á hrossum inn og út úr húsinu,
ekki síst í nýafstöðnu páskafríi. Auk þess var veikin komin upp á
tveimur nágrannabæjum og höfðu mikil tengsl verið á milli annars þeirra
og Hóla.
|
Sýni
voru tekin daginn eftir, 8. apríl, og send til veirurannsókna að Keldum
og til Dýralæknastofnunar Svíþjóðar (SVA). Samtímis hófst athugun á
útbreiðslu sjúkdómsins í öðrum landshlutum og kom þá í ljós að hross
voru farin að veikjast með sambærilegum hætti á mörgum stórum tamninga-
og þjálfunarstöðvum á Suðurlandi, Vesturlandi og á höfuðborgarsvæðinu.
Öll þessi hesthús höfðu haft bein tengsl við sömu þjálfunarmiðstöðina.
Einnig komu fram upplýsingar um að svipuð einkenni hefðu verið í hrossum
í einstaka hesthúsum á árinu 2009 og í janúar 2010. Ekki hefur verið
hægt að tengja þau tilfelli við faraldurinn vorið 2010.
Varlega
áætlað hafði smitið verið í gangi í 4 - 6 vikur þegar tilkynnt var um
veikina og hugsanlega lengur. Á þeim tíma hafði fjöldinn allur af
hrossum verið fluttur til og frá þessum tamningastöðvum og einnig höfðu
hross þaðan tekið þátt í sýningum og keppnum víðsvegar um landið. Því
var ljóst frá byrjun að útbreiðsla veikinnar væri mikil og yrði ekki
stöðvuð.
Faraldur
smitandi hósta náði hámarki meðal húshrossa í maí og u.þ.b. tveimur
mánuðum síðar í stóðhrossum. Faraldurinn var að mestu genginn yfir í
vetrarbyrjun 2010. Þrátt fyrir að ekki væri um alvarlegan sjúkdóm að
ræða olli hann mikilli röskun á hestatengdri starfsemi og þar með miklu
fjárhagslegu tjóni.
Sjúkdómseinkenni
Greinilegasta
sjúkdómseinkennið var þurr hósti sem menn urðu í mörgum tilfellum fyrst
varir við í reið. Samtímis eða nokkru fyrr mátti í sumum tilfellum
greina glært nefrennsli, augnhvarmabólgu og í einhverjum tilfellum
slappleika. Alla jafna voru hrossin ekki með hita. Þegar frá leið fengu
mörg hrossanna mikinn, graftarkenndan hor og hóstuðu þá gjarnan enn
meira og frísuðu. Þau sem fóru verst út úr sýkingunni fengu hita og
drógu úr áti. Dæmi voru um ung hross sem lögðu verulega af á meðan á
veikindunum stóð. Í alvarlegri tilfellum fengu hrossin hita og voru mörg
þeirra, einkum folöld, meðhöndluð með fúkalyfjum. Lítið var um afföll
sem sannanlega mátti rekja til veikinnar. Einstaka dæmi voru um
júgurbólgu í hryssum. Speglun á öndunarfærum leiddi í ljós vægar
slímhúðarbreytingar í efri hluta öndunarvegar þ.e. nefholi, koki, og
barka.
Faraldsfræði
Öll
hross landsins reyndust móttækileg fyrir sýkingunni þó afar misjafnt
væri hversu alvarlega þau veiktust. Því var frá upphafi talið að um nýtt
smitefni væri að ræða hér á landi. Sterkt samband virtist vera milli
smitálagsins í umhverfinu og hversu fljótt sjúkdómseinkenni komu fram,
hversu alvarleg þau urðu og hversu langvarandi. Erfitt var að ákvarða
meðgöngutíma sjúkdómsins nákvæmlega þar sem byrjunareinkennin voru alla
jafna afar væg, en hann er líklega á bilinu 1-2 vikur. Hross sem komu
inn í mikið smitað umhverfi byrjuðu alla jafna að hósta eftir 2-3 vikur.
Tíminn frá því smit barst í hesthús (yfirleitt með sýktum hesti) þar
til hestarnir sem þar voru fyrir fóru að hósta var þó lengri, oftast um 4
vikur en gat tekið upp í 8 vikur. Þessi langi tími bendir til að hestar
smiti ekki út frá sér á meðgöngutímanum og að fyrst og fremst sé um
snertismit að ræða.
Sjúkdómsferillinn
var býsna líkur milli hesthúsa og einkenndist af lúmskri byrjun. Fyrst
veiktust þeir hestar sem næst stóðu smitberanum Við það magnaðist smitið
upp og 2-4 vikum síðar voru flestir ef ekki allir hestarnir í húsinu
farnir að hósta og komnir með graftarkennt nefrennsli. Þá varð smitálag í
húsunum mikið og viðvarandi og tafði fyrir bata. Dæmi eru um að hross
hafi hóstað í 10 vikur og jafnvel lengur, en alla jafna vörðu einkennin í
2-6 vikur. Endursmit getur átt sér stað, einkum hjá þeim hrossum sem
fengu væga sýkingu. Ekki liggur fyrir hversu lengi hross smita út frá
sér eða hversu langur tími líður frá því veikin gengur yfir í hesthúsi
þar til það verður smitfrítt. Margt bendir þó til að smitið sé fremur
lífsseigt í umhverfinu.
Helsta
smitleiðin var með smituðum eða veikum hrossum sem flutt voru milli
húsa eða beitarhólfa. Bein snerting milli hesta var nauðsynleg í byrjun
en eftir að smitið hafði magnast upp innan hesthúsa varð allt umhverfi
hrossanna það mengað að öll hrossin smituðust. Einnig barst smit með
reiðverum, einkum beislum, og menn gátu borið það milli hrossa með
óhreinindum utan á fatnaði og öðrum búnaði. Veikin barst í útigangshross
með framangreindum leiðum en ekki var um loftborið smit að ræða. Smitið
barst hratt milli útigangshrossa sem átu úr sömu heyrúllu og/eða drukku
úr sama vatnskari en þegar leið á sumarið hægði mjög á
smitdreifingunni. Smitið magnaðist á ný í stóðhestagirðingum enda komu
þar saman hross með og án einkenna og með mismikla mótstöðu. Folöldin
voru í einhverjum tilfellum móttækileg frá fæðingu en yfirleitt bar
lítið á einkennum í ungum folöldum.
Upphaf
faraldursins hefur verið rakið til smitdreifingar frá tiltekinni
þjálfunarmiðstöð í febrúar og mars. Svo virðist sem smitið hafi borist
þangað í byrjun febrúar en ekki er vitað hvernig það gerðist. Á þessari
þjálfunarmiðstöð magnaðist smitið upp og breiddist hratt út til annarra
tamninga- og þjálfunarstöðva. Í byrjun apríl voru veikindin orðin
áberandi í a.m.k. 17 stórum stöðvum sem allar höfðu tekið við hesti eða
hestum frá þessum sama stað. Auk þess var a.m.k. eitt dæmi um að veikin
hefði borist frá þjálfunarmiðstöðinni með reiðtygjum. Vegna mikilla
flutninga á hrossum milli hrossabúa og hvers kyns tamninga- og
þjálfunarstöðva, auk sýninga- og mótahalds, breiddist smitið hratt út í
kjölfarið. Smitið var því orðið útbreitt á Suður-, Vestur- og
Norðurlandi og komið í alla landshluta í byrjun apríl þegar veikindin
komu upp á yfirborðið. Upplýsingum um útbreiðslu sjúkdómsins var safnað
með netkönnun sem send var um 200 hrossaræktendum og þjálfunarstöðvum
um allt land og með hjálp félagasamtaka hestamennskunnar.
Mynd 1. Smitdreifing í febrúar, mars og byrjun apríl 2010
Greiningar
Sýni
voru tekin strax og tilkynningin barst, bæði blóðsýni (parað sermi, tvö
sýni með 10 daga millibili) og stroksýni úr nefi og þau send til
greiningar á Keldum og Dýralækningastofnun Svíþjóðar. Auk þess hafa sýni
verið send veirudeildar Justus-Liebig-háskólans í Giessen Þýskalandi.
Prófað
var fyrir öllum veirum sem vitað er til að leggist á öndunarfæri hrossa
og voru allar niðurstöður þeirra rannsókna neikvæðar. Þannig er búið að
útiloka hestainflúensu (og raunar allar þekktar gerðir inflúensu),
smitandi háls og lungnakvef/fósturlát/heilabólgu (hesta herpes týpa
1,EHV-1), smitandi æðabólgu (EAV), rhinoveirur 1, 2 og 3, hesta herpes
týpurnar 4, 2 eða 5, reo veirur, parainflúensu og adenoveiru 1.
Bakterían Streptococcus zooepidemicus
ræktaðist úr nær öllum hestum sem voru með hósta og graftarkenndan hor.
Við krufningu tilraunahrossa sem voru aflífuð þremur og fjórum vikum
eftir að hafa verið hýst með sýktum hrossum, ræktaðist bakterían í
hreinrækt úr nefholi, koki og barka. Bakterían hefur nokkrum sinnum
áður greinst í hrossum hér á landi og er tiltölulega algeng í umhverfi
hesta. Bakterían er þekkt í nágrannalöndum okkar sem orsök
öndunarfærasýkinga en þá fyrst og fremst í unghrossum. Sjúkdómurinn er í
flestum tilfellum talinn hættulaus en truflar þjálfun.
Greina má S. zooepidemicus
í mismunandi stofna með sameindaerfðafræðilegum aðferðum.
Bakteríustofnar sem ræktuðust úr hrossum með smitandi hósta og stofnar
úr fyrri sýkingum af völdum S. zooepidemicus
í hrossum hér á landi voru sendir í slíka greiningu (MLST) til Animal
Health Trust í Newmarket. Sú rannsókn leiddi í ljós að nýr stofn
bakteríunnar hafði borist í hrossastofninn og valdið faraldrinum. Þessum
stofni, ST 209, var lýst árið 2008 sem orsök svipaðra sjúkdómstilfella í
nágrannalandi okkar. Má því ætla að hann hafi borist hingað erlendis
frá.
Bakterían Streptococcus equi
sem veldur hinni illvígu kverkeitlabólgu hefur hins vegar ekki greinst
enda bentu einkennin ekki til að um þann sjúkdóm hefði verið að ræða.
Meinafræði
Krufning
á tilraunahrossum leiddi í ljós aukna slímmyndun í öndunarvegi og
graftarkenndan hor í nefgöngum. Við vefjaskoðun sást meðalbráð
slímhúðarbólga í nefholi, koki og einkum í barka.
Krufning
á 17 folöldum sem drápust sumarið og haustið 2010 leiddi í ljós að
rúmlega helmingur þeirra var með væga bólgu í efri öndunarvegi og
ræktaðist bakterían í flestum tilfellum úr þessum folöldum. Tvö
folaldanna höfðu sannanlega drepist úr sýkingunni og í þremur tilfellum
til viðbótar var hún meðvirkandi dánarorsök. Í flestum tilfellum voru
dánarorsakir aðrar og fjölþættar. Tvö af fjórum fullorðnum hrossum sem
send voru í krufningu á tímabilinu drápust af völdum fylgikvilla
sýkingar með bakteríunni.
Umræður
Fullvíst
má telja að smitið hafi verið komið á kreik í febrúar og kannski fyrr.
Meirihluti reiðhesta á þéttbýlli stöðum landsins var búinn að taka
smitið um mánaðarmótin apríl – maí og upp úr því náði faraldurinn
hámarki hjá húshrossum. Á þeim tíma virtist veikin bráðsmitandi og
grunur beindist að veirusýkingu. Þegar frá leið varð ljóst að smitefnið
hafði búið um sig í langan tíma og magnast upp innan hesthúsa án þess að
menn yrðu þess varir. Þannig skapaðist mikið smitálag í hesthúsum sem
leiddi til þess að mörg hross veiktust svo að segja samtímis. Smitið
barst einnig í stóðhross, bæði með sýktum hestum og óhreinum búnaði,
tækjum og fatnaði. Í einhverjum tilfellum gerðist það áður en menn urðu
sjúkdómsins varir.
Við
nánari rannsóknir á faraldsfræði sjúkdómsins varð ljóst að ekki væri um
bráðsmitandi veirusýkingu að ræða. Þvert á móti kom í ljós að sýkingin
var mjög lengi að ná sér á strik og þurfti að magnast upp í þéttum
hrossahópum til að valda svo umfangsmiklum veikindum sem raun bar vitni.
Aðstæður í hesthúsum áttu mikinn þátt í að svo fór. Á þeim árstíma sem
veikin kom upp var erfitt að bregðast við þeim aðstæðum því enn var kalt
í veðri. Hestamönnum var þó ráðlagt að létta á smitálaginu með því að
fækka hrossum á húsi ef hægt var, auka útiveru og hreinsa og sótthreinsa
hesthúsin. Með því móti varð veikin alla jafna vægari og hver hestur
veikur í styttri tíma. Veikin var engu að síður mjög lengi að ganga yfir
í hrossahópum ef smitálag var lítið, t.d. í stóðum eftir að hrossin
voru komin á beit og höfðu aðgang að rennandi vatni. Við þær aðstæður
þurfti beint snertismit að koma til.
Hestamönnum
var rálagt að hvíla hesta um leið og vart varð við einkenni
sjúkdómsins. Hvatt var til aukins eftirlits með öllum hrossum. Víða
voru hryssurnar veikar þegar þær köstuðu en það kom alla jafna ekki að
sök. Folöldin reyndust viðkvæmust eftir tveggja til þriggja mánaða
aldurinn. Krufningar á 17 folöldum sem drápust um sumarið bentu ekki til
að mikil hætta væri á að smitandi hósti drægi folöld til dauða.
Lokaorð
Smitandi hósti árið 2010 orsakaðist af bakteríu af tegundinni Streptococcus zooepidemicus.
Stofn bakteríunnar sem olli faraldrinum er nýr hér á landi en hefur
greinst í svipuðum sjúkdómstilfellum erlendis. Þar sem allan
hrossastofninn skorti sértæk mótefni gegn þessu smitefni sköpuðust
forsendur fyrir víðtækum faraldri. Umhverfisaðstæður voru bakteríunni
hagstæðar og þar sem sjúkdómurinn var vægur, einkum í byrjun,
uppgötvaðist hann ekki fyrr en hann hafði breiðst út um mestallt land.
Ekki
er ljóst hvenær eða hvernig smitefnið barst til landsins en spjótin
beinast m.a. að ólöglegum innflutningi notaðra reiðtygja. Það virðist
hafa færst í vöxt að hestamenn taki ýmsan búnað með sér milli landa,
einkum mél, en öllum ætti nú að vera ljós sú mikla áhætta sem slíkum
innflutningi fylgir.
Smitið
magnaðist upp á tiltekinni þjálfunarmiðstöð í febrúar og mars og varð
það afgerandi fyrir útbreiðslu sjúkdómsins. Ekki er vitað hvernig smitið
barst þangað en líklega hefur það borist með smituðum hesti sem kom
þangað til þjálfunar.
Faraldur
smitandi hósta reyndist enn ein birtingarmynd þess hversu viðkvæmur
íslenski hrossstofninn getur verið fyrir nýjum smitefnum, jafnvel þeim
sem ekki eru þekkt fyrir að valda alvarlegum sjúkdómum þar sem þau eru
landlæg. Því verða allir að leggjast á eitt um að efla smitvarnir
landsins og verja hrossin frekari áföllum.
Sigríður Björnsdóttir, Vilhjálmur Svansson*, Ólöf Sigurðardóttir* og Eggert Gunnarsson*
Matvælastofnun, *Keldur, Tilraunastöð HÍ í meinafræðiÍtarefni
Faraldur smitandi hósta í íslenska hrossastofninum - lokaskýrsla (prentvæn) - 10.03.11
Smitvarnir vegna innflutnings á reiðfatnaði og reiðtygum
Íslenski hrossastofninn stendur keikur - 10.05.11
Kröfu um heimasóttkví útflutningshrossa aflétt um áramót
- 14.12.10
Ekki mikið um folaldadauða í kjölfar smitandi hósta - 25.11.10
Hrossin, hóstinn og haustið - 23.09.10
Heilbrigði hrossa í fjallferðum og göngum
- 30.08.10
Rjúfum smitleiðir smitandi hósta í hrossum
- 19.08.10
Útflutningur hrossa hefst á ný 15. september - 13.08.10
Eyðublað - Yfirlýsing um heimaeinangrun hrossa vegna smitandi hósta
Hósti í folöldum krefst aukins eftirlits - 12.08.10
Smitandi hósti í hrossum - stöðumat júlí 2010 - 21.07.10
Smitandi
hósti í hrossum ekki talinn af völdum herpessýkinga - 21.06.10
Styrkur til rannsókna á smitandi hósta í hrossum - 16.06.10
Smitandi hósti í hrossum – stöðumat júní 2010 - 04.06.10
Leiðbeiningar um þrif og sótthreinsun á hesthúsum - 02.06.10
Leiðbeiningar
um þrif og sótthreinsun á hestakerrum og hestaflutningabílum - 02.06.10
Getur fólk smitast af hestapestinni? - 02.06.10
Bakteríusýking helsti orsakavaldurinn - 27.05.10
Forsendur fyrir áframhaldandi undirbúningi landsmóts - 24.05.10
Smitandi
hósti í hrossum – stöðumat 20. maí
Hestar fá líka kvef - grein dýralæknis hrossasjúkdóma í Morgunblaðinu 10.05.10
Viðtal við dýralækni hrossasjúkdóma hjá MAST á vef Landsmóts hestamanna - 10.05.10
Tilkynning frá framkvæmdanefnd landsmóts hestamanna - 07.05.10
Viðbrögð við smitandi hósta í hrossum - 07.05.10
Smitandi hósti í hrossum - stöðumat 04.05.10
Hestasýningar raskast - grein í Morgunblaðinu 04.05.10
Smitandi
hósti í hrossum dregur dilk á eftir sér - 28.04.10
Nauðsynlegt
að hvíla hross sem hósta - 19.04.10
Smitandi
hósti í hrossum - 13.04.10