Fara í efni

Hundar og gosstöðvar

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun ræður fólki eindregið frá því að taka hunda með á gosstöðvarnar í Geldingadölum. Mikil mengun er á svæðinu af efnum sem geta haft skaðleg áhrif á hunda. Jafnframt er hætta á ýmis konar slysum.

Á gossvæðinu er töluvert mikið áreiti, bæði hljóð og lykt, flugvélar, þyrlur og drónar og mikið af fólki, þannig að margir hundar geta orðið stressaðir. Rannsóknir Jarðvísindastofnunar og Veðurstofunnar á regnvatni á svæðinu hafa sýnt mikla efnamengun. Meðal annars hefur flúrsýra greinst langt yfir neysluvatnsviðmiðum, allt að 60 falt magn. Einnig mælist mikil saltsýra og sýrustig er mjög lágt. Ef hundar drekka vatn á svæðinu, éta snjó, eða sleikja þófa getur það haft neikvæð heilsufarsleg áhrif. Saltsýra og lágt sýrustig á yfirborði getur ert þófa og sært. Hundur með sára þófa sleikir þá gjarnan og efnin geta borist í hundinn. 

Ef fólk velur, þrátt fyrir þessar aðvaranir, að taka hunda með biðjum við það sérstaklega að hafa í huga fjögur afar mikilvæg atriði fyrir öryggi hundsins og annarra:

  1. Ekki láta hundana drekka úr vatnspollum, né éta snjó á svæðinu! Vatnið getur verið mengað af alls kyns skaðlegum efnum. Hafið með drykkjarvatn og skál og bjóðið hundinum eftir þörfum að drekka úr skálinni.
  2. Reynið að koma í veg fyrir að hundarnir sleiki feld eða þófa fyrr en skolað hefur verið af þeim með vatni eftir að komið er af gossvæðinu.
  3. Hafið hundana ávallt í taumi! Lausir hundar geta hlaupið í lægðir þar sem er gas og jafnvel á hraunið. Lausir hundar geta líka valdið öðru fólki hættu og óþægindum á leiðinni með því að koma því úr jafnvægi eða velta á það grjóti.
  4. Ekki fara mjög nálægt hrauninu með hund! Hundarnir eru töluvert lægri en við og geta fengið í sig mikið meira gas. Haldið ykkur ofarlega í brekkunni með vindinn í bakið.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?