Fara í efni

Flæði efna yfir mörkum úr borðbúnaðarsetti (bolla/disk/skál) fyrir börn

Matvælastofnun varar við notkun á borðbúnaðarsetti ( STO Bamboo Baby Set Rainforest) fyrir börn frá Nature Planet, vegna þess að flæði melamíns og formaldehýðs úr vörunni er yfir mörkum. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum evrópska viðvörunarkerfi RASFF.

  • Vörumerki: Nature Planet 

  • Vöruheiti: STO Bamboo Baby Set Rainforest

  • Strikamerki: 5708476123814

  • Framleiðsluland: Kína

  • Dreifing: Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, minjagripaverslun.

Borðbúnaðarsett fyrir börn

Viðskiptavinir sem keypt hafa umrædda vöru eru beðnir að koma með hana í minjagripasölu garðsins við fyrsta tækifæri eða farga henni. Ef frekari upplýsinga er þörf má senda tölvupóst á postur@husdyragardur.is

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?