Fara í efni

Endurnýjun rekstrarleyfis Arctic Sea Farm í Patreks- og Tálknafirði

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Arctic Sea Farm ehf. til fiskeldis í Patreks- og Tálknafirði í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 3. nóvember 2023 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 1. desember 2023.

Arctic Sea Farm sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna sjókvíaeldis í Patreks- og Tálknafirði á 7.800 tonna hámarkslífmassa af laxi. Umsókn um endurnýjun á núverandi rekstrarleyfi var móttekin þann 27. desember 2022. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?