Fara í efni

Egg villtra fugla

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun fær mikið af fyrirspurnum um hvort fólki stafi smithætta af tínslu og neyslu eggja villtra fugla vegna fuglaflensu. Stofnunin vill því koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri:

Um eggjatínslu

Það afbrigði af fuglaflensuveirunni sem nú er mest um í Evrópu og hefur greinst hér á landi, veldur almennt ekki sýkingum í fólki. Einstaka smit hefur greinst erlendis en þá hjá einstaklingum sem hafa verið í miklu návígi við sjúka fugla, án þess að gæta sóttvarna. Líkurnar á smiti frá fuglum í fólk eru því mjög litlar en þó er aldrei alveg hægt að útiloka það.

Rétt er að gæta almenns persónulegs hreinlætis við eggjatínslu, sem m.a. felur í sér góðan handþvott eftir tínsluna. Ef veikinda eða óeðlilega mikils fjölda dauðra fugla verður vart, er lagt til að láta af eggjatínslunni í þeim hópi og tilkynna um málið til Matvælastofnunar.

Um neyslu eggja

Engin dæmi eru um að fólk smitist af fuglaflensu við neyslu matvæla, aðeins við mikið návígi við sjúka fugla.

Fólk þarf þó ætíð að líta svo á að hrá egg geti verið menguð af sjúkdómsvaldandi örverum. Ávallt ber því að meðhöndla hrá egg m.t.t. þessa og gæta fyllsta hreinlætis við matreiðslu, koma í veg fyrir krosssmit í matvæli sem eru tilbúin til neyslu og huga að því að eggin séu nægilega vel elduð/hituð.

Ítarefni

Upplýsingasíða Matvælastofnunar um fuglaflensu


Getum við bætt efni síðunnar?