Fara í efni

Veirusmit í tómatrækt

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur verið upplýst um tilkynningaskyldan plöntusjúkdóm sem greinst hefur í tómatrækt hérlendis. Sjúkdómurinn nefnist Potato spindle tuber viroid, spóluhnýðissýking, og er um veirung að ræða. Veirungurinn leggst á kartöflur og tómata og getur valdið afföllum í ræktun. Veirungurinn er hvorki skaðlegur mönnum né dýrum.

Einkenni sýkingar í tómatrækt geta verið mismunandi og fer alvarleiki eftir sýkingarafbrigði. Í sumum tilfellum eru engin einkenni. Einkenna verður yfirleit fyrst vart í efri hluta plöntu þar sem lauf verða gulleit með brúnleitum flekkjum á meðan stærri æðar plöntunnar haldast skærgrænar. Vöxtur laufblaða getur einnig verið takmarkaður. Einkenni geta líka birst á ávöxtum en sýktir ávextir geta verið litlir, dökkgrænir, harðir og vöxtur afbrigðilegur.

Veirungurinn dreifist gjarnan með snertingu og er besta vörnin fólgin í auknu hreinlæti og sóttvörnum. Matvælastofnun beinir því til tómatræktenda að gæta fyllstu varúðar varðandi mögulegt smit og efla sóttvarnir til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. Jafnframt beinir Matvælastofnun því til kartöfluræktenda að gæta að mögulegu krosssmiti frá einstaklingum og aðföngum sem borið gætu smit úr tómatrækt.

Aðgerðir Matvælastofnunar vegna veirusýkinga í tómatrækt fela í sér leiðbeiningar um sóttvarnir við ræktun, tilmæli um nauðsynleg skref í sóttvörnum, skipulagða rannsókn á sýnum til að greina mögulega sjúkdóma í ræktun auk kortlagningu og greiningu á útbreiðslu.

Matvælastofnun hefur birt leiðbeiningar um hvernig koma skal á sóttvörnum í ræktun og hvetur stofnunin alla ræktendur til að innleiða sem flesta þætti leiðbeininganna eins og fljótt og auðið er.

Einnig mun Atvinnu- og Nýsköpunarráðuneytið birta reglugerð í Stjórnartíðindum á næstu dögum sem fjallar um málið. Hér að neðan má sjá reglugerðina. Matvælastofnun hvetur alla sem málið varðar til að kynna sér reglugerðina.

Ítarefni

Einnig vill Matvælastofnun beina því til allra er málið varða að tilkynna stofnuninni strax ef grunur er um smit í tómatræktun.  


Getum við bætt efni síðunnar?