Fara í efni

Vatnsveitur á lögbýlum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur opnað fyrir umsóknir um styrki vegna vatnsveita á lögbýlum í samræmi við reglugerð um framlög úr Jöfunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum. Umsóknum um stuðning skal skilað inn rafrænt á Bændatorginu eigi síðar en 1. mars.

Umsóknarfrestur verður ekki framlengdur. 

Fylgigögn sem skila þarf með umsókn eru:

  • Mat Búnaðarsambands á þörf býlis fyrir framkvæmd
  • Kostnaðar- og framkvæmdaráætlun
  • Sé um byggingu að ræða skulu fylgja teikningar

Stuðningur fyrir hverja framkvæmd getur að hámarki numið 44% af stofnkostnaði við vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa.


Getum við bætt efni síðunnar?