Fara í efni

Vanmerkur ofnæmis- og óþolsvaldur á fiskibollum í sósu

Matvælastofnun varar neytendur sem eru með ofnæmi eða óþol á einni framleiðslulotu af Ora fiskibollum í tómatsósu sem gæti verið fiskibollur í karrísósu með ranga merkingu um ofnæmis-og óþolsvalda. Fyrirtæki ÓJ-K-ÍSAM hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit  í Reykjavík innkallað vöruna.

Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: ORA
  • Vöruheiti: Fiskbollur í tómatsósu
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 28.06.26 Lotunúmer: L97651
  • Nettómagn: 850 g
  • Framleiðandi: ORA, Vesturvör 12, 200 Kópavogi Framleiðsluland: Ísland
  • Framleiðandi: ÓJ&K-ÍSAM, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslanir Bónuss, Extra og Krónunnar um land allt, Fjarðarkaup, Heimkaup, Kaupfélag Húnvetninga, Verslunin Kassinn, Plúsmarkaðurinn, Pétursbúð, Verslun Einars Ólafssonar, Hlíðarkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, verslunin Kauptún, verslunin Kassinn, Hraðbúðin N1 Hellissandi og Melabúðin

Neytendur sem eiga umræddar vöru og hafa ofnæmi- eða óþol fyrir fiski, mjólk og sinnepi eru beðnir um að neyta henni ekki og farga.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?