Fara í efni

Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar í tvenns konar flatbökum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um stöðvun á sölu og innköllun af markaði af tvenns konar flatbökum. Innköllunin kemur til vegna vanmerktra ofnæmis- og óþolsvalda.



   
Vöruheiti:  Hagkaup pizza m/pepperoni og Hagkaup pizza m/skinku.  
Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili:  Vörurnar eru framleiddar af Hollu og góðu, Reykjavík, fyrir Hagkaup, Holtagörðum, 104 Reykjavík.
Auðkenni/skýringartexti:  Afurðir úr korni sem inniheldur glúten eru ekki merktar á umbúðum pizzanna.  Að auki eru gerðar aðrar athugasemdir við umbúðmerkingar þeirra. Strikanúmer 5690628006802 (pizza m/pepperoni) og 5690628006819 (pizza m/skinku).  
Laga- /reglugerðarákvæði:  13. gr. reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla, með síðari breytingum.  14. gr. og 20. gr. reglugerðar nr. 503/2005, 8. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.  
Áætluð dreifing innanlands: Verslanir Hagkaupa um land allt.

Vanmerkt vara m.t.t. ofnæmis- og óþolsvalda skal ekki vera í dreifingu eftir 7. mars 2011 og aðrar athugasemdir um merkingar þurfa að vera leiðréttar fyrir 1. apríl.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?