Fara í efni

Vanmerktar núðlur

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar neytendur við Samyang hot chicken flavor cup ramen núðlum sem Verslunin Álfheimar flytur inn vegna vanmerkingar. Ofnæmis- og óþolsvaldar eru einungis merktar á óleyfilegu tungumáli. Einnig hefur geymsluþolsmerkingum vörunnar verið breytt. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum.

Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vöruheiti: Samyang hot chicken flavor cup ramen
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 25.1.2023
  • Strikamerki: 8801073210776
  • Nettómagn: 70 g
  • Framleiðandi: Samyang Foods Co., Ltd
  • Framleiðsluland: Suður-Kórea
  • Dreifing: Verslunin Álfheimar, Álfheimum 2, 104 Reykjavík

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga.
núðlur

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?