Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis vegna fiskeldis til Fiskeldis Austfjarða hf., áður Rifós hf., að Röndinni á Kópaskeri

Matvælastofnun hefur veitt Fiskeldi Austfjarða hf., áður Rifós hf., rekstrarleyfi til fiskeldis að Röndinni á Kópaskeri. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 9. október 2023 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 6. nóvember 2023.

Fiskeldi Austfjarða hf. sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 2.700 tonna hámarkslífmassa í seiðaeldi á laxi að Röndinni á Kópaskeri. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 4. mars 2022. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Fiskeldi Austfjarða hf. FE-1203 að Röndinni á Kópaskeri en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?