Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Háafelli ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vefsíðu stofnunarinnar þann 12. nóvember 2019 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 12. desember 2019.

Háafell sótti um stækkun á rekstrarleyfi fyrir 7.000 tonnum, þar af 6.800 tonn af regnbogasilungi og 200 tonn af þorski. Fyrirtækið var áður með 2.000 tonna rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi á regnbogasilungi og þorski  í Ísafjarðardjúpi. Úttekt starfsstöðva hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Háafells FE-1106 í Ísafjarðardjúpi.

Hámarkslífmassi eldisins í Ísafjarðardjúpi mun ekki fara yfir 7.000 tonn sem er í samræmi við burðarþolsmat Ísafjarðardjúps. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?