Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis Fiskeldis Austfjarða til fiskeldis í Stöðvarfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Fiskeldi Austfjarða hf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Stöðvarfirði í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 27. október 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 24. nóvember 2021.

Fiskeldi Austfjarða sótti um nýtt rekstrarleyfi fyrir 7.000 tonnum af laxi í Stöðvarfirði og var umsókn móttekin 22. maí 2017.

Hámarkslífmassi eldisins vegna rekstrarleyfis FE-1133 í Stöðvarfirði mun ekki fara yfir 7.000 tonn sem er í samræmi við burðarþolsmat Stöðvarfjarðar. Tekið var tillit til áhættumats Hafrannsóknastofnunar við útgáfu rekstrarleyfisins og einungis heimilað eldi á ófrjóum laxi. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum. 

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?