Tillaga að rekstrarleyfi Nesvegur 5 ehf. til fiskeldis að Ásmundarnesi í Bjarnarfirði
Frétt -
08.12.2022
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Nesveg 5 ehf. vegna fiskeldis á landi að Ásmundarnesi í Bjarnarfirði á Ströndum. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 45 tonna hámarkslífmassa vegna seiðaeldis á regnbogasilung.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 5. janúar 2023.
Ítarefni