Tillaga að rekstrarleyfi Laxey hf. til fiskeldis í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum
Frétt -
13.05.2024
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Laxey hf. vegna fiskeldis á landi í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 7.000 tonna hámarkslífmassa vegna matfiskeldis á frjóum laxi og regnbogasilungi.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 11. júní 2024.
Ítarefni
Tillaga að rekstrarleyfi Laxey hf. í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum