Tillaga að rekstrarleyfi Klausturbleikju til fiskeldis við Kirkjubæjarklaustur
Frétt -
21.11.2023
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Klausturbleikju ehf. vegna fiskeldis að Klausturvegi 5 við Kirkjubæjarklaustur. Um er að ræða endurnýjun á núgildandi rekstrarleyfi fyrir 100 tonna hámarkslífmassa vegna matfiskeldis á bleikju.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 19. desember 2023.
Ítarefni
•Tillaga að rekstrarleyfi Klausturbleikju - Kirkjubæjarklaustur