Tillaga að rekstrarleyfi Icelandic Land Farmed Salmon ehf. til fiskeldis í Friðarhöfn, Vestmannaeyjum
Frétt -
31.03.2023
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Icelandic Land Farmed Salmon ehf. vegna fiskeldis á landi í Friðarhöfn í Vestmannaeyjum. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 199 tonna hámarkslífmassa vegna seiðaeldis á laxi og regnbogasilungi.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 28. apríl 2023.
Ítarefni
- Tillaga að rekstrarleyfi Icelandic Land Farmed Salmon ehf. í Friðarhöfn, Vestmannaeyjum
- Umhverfismatsskýrsla Icelandic Land Farmed Salmon ehf. an hún nær einnig til annarar framkvæmdar sem ekki er verið að taka afstöðu til við þessa útgáfu
- Álit Skipulagsstofnunar um matskyldu en álitið nær til annarar framkvæmdar einnig sem ekki er verið að taka afstöðu til við þessa útgáfu