Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Arctic Sea Farm í Ísafjarðardjúpi við Snæfjallaströnd

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Arctic Sea Farm hf. vegna sjókvíaeldis á regnbogasilungi við Snæfjallaströnd í Ísafjarðardjúpi. Um er að ræða stækkun á eldra rekstrarleyfi Arctic Sea Farm úr 200 tonnum af regnbogasilungi og laxi í 5.300 tonn af regnbogasilungi.

Athugasemdir við tillöguna og fylgigögn skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 22. júní 2020.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?