Fara í efni

Tillaga að breytingu á rekstrarleyfi ÍS 47 ehf. til fiskeldis í Önundarfirði.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að breyttu rekstrarleyfi fyrir ÍS 47 ehf. vegna sjókvíaeldis í Önundarfirði en fyrirtækið er með rekstrarleyfi (FE-1109) fyrir 1.000 tonna hámarkslífmassa á eldi á regnbogasilungi og þorski í Önundarfirði sem gefið var út 8. janúar 2021.

Tillaga að breytingu á rekstrarleyfi byggir á tilkynningu ÍS 47 ehf. frá 21. október 2022 um tegundabreytingu og ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 7. febrúar 2023 um tegundabreytingu.

Breyting á rekstrarleyfinu heimilar eldi á frjóum laxi í Önundarfirði og heimild til eldis á þorski verður felld úr leyfinu samhliða breytingunni. Hámarkslífmassi og staðsetningar eldissvæða verða óbreytt, en eldisskilyrði breytast í samræmi við tilkomu frjós lax í rekstrarleyfið.

Í samræmi við 24. gr. reglugerðar nr. 540/2020 helst gildistími rekstrarleyfanna óbreyttur og er til 8. janúar 2036.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 12. janúar 2024.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?