Tillaga að rekstrarleyfi Samherja fiskeldis að Núpum í Ölfusi
Frétt -
16.12.2019
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Samherja fiskeldi ehf. vegna fiskeldis á landi að Núpum í Ölfusi. Um er að ræða stækkun á eldra rekstrarleyfi úr 150 tonna seiðaeldi af laxi og bleikju í 300 tonna seiðaeldi af laxi og bleikju.
Athugasemdir við tillöguna og fylgigögn skulu vera skrifleg og send Matvælastofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 12. janúar 2020.