Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Samherja fiskeldi að Stað í Grindavík

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Samherja fiskeldi ehf. vegna fiskeldis á landi að Stað í Grindavík. Um er að ræða stækkun á eldra rekstrarleyfi úr 1.600 tonnum af laxi og bleikju í 3.000 tonn af laxi og bleikju.

Athugasemdir við tillöguna og fylgigögn skulu vera skrifleg og send Matvælastofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 4. október 2019.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?