Tillaga að rekstrarleyfi Lindarfisks í Skaftárhreppi
Frétt -
19.11.2019
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Lindarfisk ehf. vegna fiskeldis á landi að Botnum, Meðallandi í Skaftárhreppi. Um er að ræða stækkun á eldra rekstrarleyfi úr 20 tonna seiða- og matfiskeldi á bleikju í 300 tonna seiða- og matfiskeldi á bleikju.
Athugasemdir við tillöguna og fylgigögn skulu vera skrifleg og send Matvælastofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 19. desember 2019.