Fara í efni

Takmörkunum aflétt vegna mögulegrar brúsellusýkingar

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í sumar kom upp grunur um brúsellusýkingu hér á landi, bæði í heimilishundi og í hundum í einangrunarstöð. Slík sýking hefur aldrei verið staðfest á Íslandi, og því málið tekið alvarlega af hálfu Matvælastofnunar. Í framhaldinu voru ráðstafanir gerðar til að koma í veg fyrir smitdreifingu á meðan málið var rannsakað. Í ljósi niðurstaðna sem fengist hafa með umfangsmiklum rannsóknum á sýnum og ráðgjöf frá sérfræðingum, hefur stofnunin tekið ákvörðun um að aflétta fyrrgreindum takmörkunum.

Brúsellusýking, Brucella canis, getur valdið bólgum í eistnalyppum hjá rökkum og fósturláti hjá tíkum. Einnig geta hvolpar fæðst andvana eða veikburða. Þótt sjaldgæft sé, getur fólk einnig sýkst af bakteríunni. Sýkingarhætta er mest við got hjá sýktum tíkum og handfjötlun fósturhimna og dauðra eða veikra hvolpa.

Eftir endurteknar sýnatökur og rannsóknir hafa allir hundarnir í einangrunarstöðinni nema einn verið metnir neikvæðir og útskrifaðir úr einangrun. Þar sem niðurstöður úr rannsókn á fyrri sýnum voru ekki taldar nægilega áreiðanlegar, verða ný sýni tekin úr einum hundi sem enn er í einangrun.

Mikil umræða hefur verið í nágrannalöndum að undanförnu um sýkingar af völdum Brucella canis, en tilfellum virðist fjölga. Þótt Brucella canis hafi aldrei verið staðfest í hundum hér á landi er ekki útilokað að hún leynist eða hafi einhvern tíma verið til staðar, því sýkingin er þess eðlis að oft koma lítil sem engin klínísk einkenni fram. Í ljósi þessa skoðar Matvælastofnun nú möguleika á að framkvæma almenna könnun á mótefnastöðu gegn þessari bakteríu í hundum í landinu á næstunni.

Matvælastofnun hvetur dýralækna og hundaeigendur, sér í lagi ræktendur, til að vera vakandi fyrir einkennum sem geta bent til brúsellusýkingar og hafa samband við Matvælastofnun ef grunur vaknar.


Getum við bætt efni síðunnar?