Fara í efni

Sumarstarfsmenn í eftirliti með sjávarafurðum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun óskar eftir að ráða fjóra starfsmenn í sumarstarf frá byrjun júní fram í ágúst við eftirlit með sjávarafurðum. Starfssvæði þessara eftirlitsmanna verða: Vesturland (Snæfellsnes), sunnanverðir Vestfirðir, Eyjafjarðarsvæðið og Suðurnes/Höfuðborgarsvæðið.


Starfsmennirnir munu heyra undir skrifstofu matvælaöryggis og neytendamála sem að öðru leyti hefur aðsetur í aðalskrifstofu MAST á Selfossi.

Matvælastofnun hefur frá 1. mars 2011 tekið yfir allt eftirlit með framleiðendum sjávarafurða sem að hluta til hefur verið í höndum faggiltra skoðunarstofa. Starfið mun útheimta nokkur ferðalög innan þess svæðis sem viðkomandi verður ráðinn á.

Helstu verkefni:

  • Eftirlit með aflameðferð
  • Eftirlit með hreinlæti smábáta
  • Samskipti við leyfishafa
  • Eftirlit með löndunaraðstöðu í höfnum
  • Skýrslugerð og frágangur gagna í gagnagrunn
  • Önnur verkefni sem starfsmanni eru falin
Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Háskólamenntun/nemar eða önnur framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla á sviði eftirlits með framleiðslu sjávarafurða æskileg
  • Þekking á lögum og gerðum EES um matvæli og fóður er kostur
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Góð framkoma og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Góð tölvu- og tungumálakunnátta


Nánari upplýsingar um starfið veita Sigurður Örn Hansson og Hafsteinn Jóh. Hannesson og í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum “Sumareftirlitsmaður – (nafn svæðis)” eða með tölvupósti á mast@mast.is en umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2011. Öllum umsóknum verður svarað. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi SFR við Fjármálaráðuneytið.


Getum við bætt efni síðunnar?