Fara í efni

Starfsemi stöðvuð og frekari innkallanir vegna listeríu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Frekari rannsókn á örverumengun hjá Ópal Sjávarfangi gefur tilefni til að ætla að ekki hafi tekist að uppræta listeríumengun í fyrirtækinu og að fleiri afurðir kunni að vera mengaðar af bakteríunni. Fyrirtækið hefur ákveðið að innkalla allar reyktar afurðir þess úr verslunum, í samráði við Matvælastofnun. Áður var allur graflax innkallaður af sömu ástæðu. 

Ópal Sjávarfang hefur jafnframt stöðvað alla framleiðslu og dreifingu á meðan unnið er að úrbótum, undir eftirliti Matvælastofnunar.

Innköllunin nær til allra lotunúmera á reyktum afurðum (birkireyktum, hangireyktum og heitreyktum) frá Ópal Sjávarfangi sem eru á markaði (síðustu notkunardagar í janúar, febrúar og mars). Átt er við allan kaldreyktan lax, heitreyktan lax, reykta fjallableikju, reyktan makríl og síld: bita, hálfflök, flök, kubba, hnakka, sneiðar, áleggslax, laxakurl. 

  • Dæmi um vöruheiti: Ópal reyktur / birkireyktur / hangireyktur / heitreyktur lax (laxabiti, flök, kubbar, hnakkar, sneiðar, áleggslax, laxakurl), Ópal reykt / birkireykt / hangireykt fjallableikja (bitar og sneiðar), Ópal heitreykt makrílflök, Ópal léttreykt síldarflök
  • Framleiðandi: Ópal Sjávarfang ehf, Grandatröð 4, 220 Hafnarfjörður
  • Dreifingaraðilar: Verslanir 10-11, verslanir Hagkaupa, verslanir Nettó, verslanir Kjörbúðarinnar, verslanir Krambúðarinnar, Melabúðin, verslanir Iceland og verslunin Kvosin

Dæmi um vörur

Neytendum sem keypt hafa vörurnar er bent á að neyta þeirra ekki og hafa samband við fyrirtækið um endurgreiðslu í síma 517 66 30 eða á netfanginu opal@opal.is.

Þeir sem eiga reyktar afurðir frá því í desember eða janúar í frysti hjá sér, eru einnig beðnir um að hafa samband og skila þeim gegn endurgreiðslu.

Listeria monocytogenes getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi.

Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn, aldraðir og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.

Ítarefni

Frétt uppfærð 14.02.19 kl. 9:45


Getum við bætt efni síðunnar?