Fara í efni

Skýrslur um veikindi hrossa á Kúludalsá í Hvalfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur nú birt á vef sínum skýrslur með niðurstöðum rannsókna á veikindum hrossa á Kúludalsá í nágrenni Grundartanga. Áður hafði stofnunin birt frétt um niðurstöður rannsóknarinnar sem sýndu engar vísbendingar um að hrossin hafi orðið fyrir eitrun af völdum flúors eða þungmálma. 

Vísindasamfélaginu ber saman um að vísbendingar um flúormengun komi fyrst fram í beinvef og glerungi tanna enda sýnt fram á að flúor safnast upp í þessum vefjum. Mæling flúors í beinvef er besta leið til að greina flúoreitrun í dýrum. Viðmiðunargildi hafa ekki verið ákvörðuð sérstaklega fyrir hross og því eru rannsóknir á öðrum dýrategundum hafðar til hliðsjónar. Það er styrkur rannsóknar á þremur hrossum frá Kúludalsá að tækifæri gafst til að skoða tennur og bein hrossanna mjög nákvæmlega sem og vefjasýni úr lifur og nýrum. Því er hægt að fullyrða að þau gildi sem komu fram á styrk flúors í beini höfðu ekki heilsufarsleg áhrif á hrossin.

Að þeirri niðurstöðu fenginni eru ekki faglegar forsendur til að mæla styrk flúors í öðrum líffærum enda liggja ekki fyrir viðmiðunargildi sem hægt væri að bera slíkar mælingar saman við. Matvælastofnun getur ekki beitt sér fyrir frekari rannsóknum nema fyrir liggi faglegur rökstuðningur um gagnsemi þeirra.

Ítarefni

Frétt uppfærð 07.06.18 kl. 14:18


Getum við bætt efni síðunnar?