Fara í efni

Skordýr í poppmaís

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vekur athygli neytenda á að skordýr hafa fundist í poppmaís frá Coop. Um er að ræða 500g einingu sem merkt er með best fyrir dagsetningunni 22.10.2019. Samkaup er að innkalla vöruna úr verslunum og frá neytendum.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi best fyrir dagsetningu:

  • Vöruheiti: Coop Popcorn
  • Þyngd: 500g
  • Best fyrir dagsetning: 22.10.2019
  • Framleiðsluland: Danmörk
  • Dreifing: Verslanir Kjörbúða, Krambúða, Nettó, Strax, Háskólabúð – HÍ og Seljakjör

Viðskiptavinir eru hvattir til að skila vörunni í viðkomandi verslun gegn endurgreiðslu. Hægt er að skila vörunni í verslunum Nettó, Krambúðarinnar og Kjörbúðarinnar.

Ítarefni

Frétt uppfærð 18.02.19 kl. 13:15


Getum við bætt efni síðunnar?