Fara í efni

Skordýr í kryddi

Matvælastofnun vekur athygli á innköllun á einni framleiðslulotu af Jalapeno Everything Bagel Seasoning sem Krónan ehf. flytur inn. Innköllunin er vegna þess að það fannst skordýr í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes.

Upplýsingar um vöruna sem innköllunin einskorðast við

  • Vörumerki: Bowl & Basket
  • Vöruheiti: Jalapeno Everything Bagel Seasoning
  • Nettómagn: 65 grömm
  • Framleiðandi: Wakefern
  • Innflytjandi: Krónan
  • Framleiðsluland: Bandaríkin
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 5/04/2025 (4. maí 2025, USA dagsetning)
  • Geymsluskilyrði: Geymist á þurrum stað við stofuhita.
  • Dreifing: Krónan Lindir, Flatahraun, Grandi, Selfoss, Bíldshöfði, Skeifan, Akureyri, Mosfellsbær, Akranes, Fitjar, Grafarholt, Borgartún, Vallakór og Reyðarfjörður.

Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna í verslunum Krónunnar er bent á að skila henni í viðkomandi verslun gegn fullri endurgreiðslu. Viðskiptavinir sem verða mögulega fyrir óþægindum vegna þessa eru beðnir innilega afsökunar.

Krydd

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?