Fara í efni

Sex héraðsdýralæknar ráðnir til starfa hjá Matvælastofnun

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Gengið hefur verið frá ráðningu í allar sex stöður héraðsdýralækna sem verða til með breyttri umdæmaskipan frá og með 1. nóvember n.k.

  • Héraðsdýralæknir í Suðvesturumdæmi verður Gunnar Örn Guðmundsson en hann hefur gegnt stöðu héraðsdýralæknis í Gullbringu- og Kjósarumdæmi.
  • Héraðsdýralæknir í Vesturumdæmi verður Flora-Josephine Hagen Liste, en hún hefur ásamt Hjalta Viðarsyni gegnt starfi héraðsdýralæknis í Dalaumdæmi.
  • Héraðsdýralæknir í Norðvesturumdæmi verður Egill Þorri Steingrímsson, en hann hefur gegnt stöðu héraðsdýralæknis í Austur-Húnaþingsumdæmi.
  • Héraðsdýralæknir í Norðausturumdæmi verður Ólafur Jónsson, en hann hefur gegnt stöðu héraðsdýralæknis í Skagafjarðar- og Eyjafjarðarumdæmi.
  • Héraðsdýralæknir í Austurumdæmi  verður Hjörtur Magnason, en hann hefur gegnt stöðu héraðsdýralæknis í Austurlandsumdæmi nyrðra.
  • Héraðsdýralæknir í Suðurumdæmi  verður Gunnar Þorkelsson, hann hefur gegnt stöðu héraðsdýralæknis í Vestur-Skaftafellsumdæmi.


Nánari upplýsingar um staðsetningu umdæmisskrifstofa, símanúmer, netföng og þ.h. verða gefnar út  á heimasíðu MAST fyrir 1. nóvember nk.



Getum við bætt efni síðunnar?