Fara í efni

Sauðfé fjarlægt af bæ í Suðurumdæmi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun svipti bónda í Suðurumdæmi sauðfé sínu vegna óviðunandi aðbúnaðar og umhirðu. Rúmlega 300 kindum á bænum hefur nú verið slátrað. Um ítrekuð brot var að ræða án þess að kröfur Matvælastofnunar um úrbætur væru virtar.

Matvælastofnun hefur haft afskipti af sauðfjárbýli í Suðurdæmi undanfarin ár vegna ófullnægjandi aðbúnaðar og umhirðu. Húsakostur á bænum var m.a. ófullnægjandi síðastliðinn vetur en tryggja þarf viðeigandi húsnæði og innréttingar skv. lögum um velferð dýra. Matvælastofnun gaf lokafrest til úrbóta til 15. september til að tryggja fullnægjandi aðstöðu dýra í vetur en kröfur um úrbætur voru ekki virtar.

Með dýravelferðarlögum hefur Matvælastofnun heimild til að framkvæma vörslusviptingu á dýrum þegar dýraeigendur fylgja ekki reglum um velferð dýra og virða ekki tilgreinda fresti sem þeim eru gefnir. Þær rúmlegu 300 kindur sem voru á bænum voru fjarlægðar og sendar til slátrunar.


Getum við bætt efni síðunnar?