Salmonella í SFC kjúklingabitum
Frétt -
18.03.2021
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á SFC Take Home Boneless Bucket 650g og SFC Southern Fried Chicken Strips 400g kjúklingabitum vegna salmonellumengunar. Aðföng, sem flytur inn kjúklingabitana, innkallar vörurnar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Hvað varðar SFC Take Home Boneless Bucket 650g kjúklingabita er um að ræða útvíkkun á fyrri innköllun.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi vörur:
- Vörumerki: SFC
- Vöruheiti: Take Home Boneless Bucket - Crunchy golden pieces of tasty, succulent Chicken Crispy Strips, Dippers and Poppets coated in a Southern Fried Style coating
- Best fyrir dagsetning: Allar dagsetningar til og með 30.06.2022
- Lotunúmer: Öll lotunúmer
- Strikamerki: 5031532020629
- Nettómagn: 650g
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Dreifing: Verslanir Hagkaupa um allt land
- Vörumerki: SFC
- Vöruheiti: Southern Fried Chicken Strips - Crunchy, golden, succulent Chicken Fillet Strips covered in our extra special recipe Southern Fried Style coating
- Best fyrir dagsetning: Allar dagsetningar til og með 30.06.2022
- Lotunúmer: Öll lotunúmer
- Strikamerki: 5031532020018
- Nettómagn: 400g
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Dreifing: Verslanir Bónus og Hagkaupa um land allt
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreindar vörur eru beðnir um að neyta þeirra ekki og skila í versluninni þar sem þær voru keyptar gegn endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori hjá adfong.is.
Ítarefni
- Salmonella í kjúklingabitum - frétt Matvælastofnunar 04.03.21
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
- Upplýsingasíða Matvælastofnunar um salmonellu
- Þessum upplýsingum átt þú rétt á - upplýsingaspjald Matvælastofnunar um merkingar matvæla
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook