Fara í efni

Ómerkt mjólk í kökuskreytingarefni

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi- eða óþol fyrir mjólk við neyslu á silfurkúlum frá Dr. Oetker. Varan inniheldur mjólk sem ekki er getið um á umbúðum. Kaupfélag Skagfirðingar hefur ákveðið að taka úr sölu og innkalla vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra. 

Innköllun á við allar lotur og allar best fyrir dagsetningar:

  • Vörumerki: Dr.Oetker
  • Vöruheiti: Chocolate Silver Pearls
  • Strikamerki: 5701073061060
  • Best fyrir dagsetningar: Allar dagsetningar.
  • Eftirfylgnisnúmer: 401775 EC VALIDATED
  • Framleiðandi: Dr.Oetker
  • Innflutingsaðili á Íslandi: Kaupfélag Skagfirðinga.
  • Dreifing: Skagfirðingabúð

Tilkynning um innköllun barst Matvælastofnun frá Danmörku í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli á markaði. Varan er ekki skaðleg þeim sem ekki hafa ofnæmi eða óþol fyrir mjólk. 

Hægt er að skila vörunni í Skagfirðingabúð eða senda hana til Kaupfélags Skagfirðinga, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki. Nánari upplýsingar veitir Skagfirðingabúð.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?