Ómerkt egg og lúpína í Bónus ristuðum karamelluhnetum
Frétt -
12.03.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi fyrir eggjum eða lúpínu við neyslu á ristuðum karamelluhnetum sem merktar eru Bónus. Varan getur innihaldið snefilmagn af ofnæmis- og óþolsvöldunum egg og lúpínu án þess að það komi fram á umbúðum. Aðföng hefur innkallað allar framleiðslulotur úr verslunum Bónusar, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
- Vörumerki: Bónus
- Vöruheiti: Ristaðar karamelluhnetur
- Nettómagn: 150 g
- Strikanúmer: 5690350053792
- Best fyrir dagsetningar: Allar dagsetningar
- Framleiðandi (pökkunaraðili): Nathan & Olsen hf, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík
- Dreifing: Allar verslanir Bónusar
Neytendur sem hafa ofnæmi/óþol fyrir eggjum eða lúpínu er bent á að neyta ekki vörunnar. Þeir viðskiptavinir sem kunna að eiga þessa vöru geta skilað og fengið endurgreitt í öllum verslunum Bónusar.