Fara í efni

Ólöglegur innflutningur á dýrum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur óskað eftir opinberri rannsókn lögreglu á einstaklingi sem grunaður er um að hafa flutt til landsins án leyfis slöngur, snáka, eðlur og tarantúlur. 

Skv. lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra er óheimilt að flytja til landsins hvers konar dýr, tamin eða villt, svo og erfðaefni þeirra.  Refsingar liggja við brotum á lögunum. Hægt er að sækja um undanþágu til slíks innflutnings.  Tvö leyfi þarf til þess.  Annars vegar frá Matvælastofnun.  Hins vegar frá Umhverfisstofnun. Eini innflutningurinn á snákum og tarantúlum sem leyfður hefur verið til Íslands er heimild sem húsdýragarðurinn fékk fyrir 10-15 árum.

Matvælastofnun varar eindregið við ólöglegum innflutningi á dýrum.  Með þeim hætti geta borist hættuleg smitefni til landsins sem ógna heilsu fólks og dýra.  


Getum við bætt efni síðunnar?